Golf practice

August 11th, 2009


Practice Drills:
Golf: How To Improve Your Putting With Practice Drills

Set Up:
Golf: How To Setup Your Shot For A 50 Yard Pitch

Practice Drills:
Golf: How To Warm Up On The Driving Range

Practice Drills:
Golf: Chipping Practice Drills

Post ufc 101

August 10th, 2009

Einfalt er betra

July 28th, 2009

Pásus

June 30th, 2009

Ljúfa sumarlífið leikur við mann daginn út og inn. Golf, bústaður og aðrir uppbyggjandi hlutir eru orðnir að daglegum athöfnum. Í næstu viku mun ég taka þátt í Meistaramóti GKG, það eru 4 hringir spilaðir og höggleikur innan ákveðins forgjafabils. Ég er með frekar ofarlega forgjöf í mínum flokk en ætla ekki að láta það aftra mér. Strangt æfingarplan hefur verið tekið upp og verður fylgt eftir í þessari viku.
Annars fékk Anna þær gleðifréttir í gær að hún komst inn í Arkitektarskólann í Kaupmannahöfn. Þetta breytir framtíðarplönum manns á skemmtilegan veg og bíða nokkur ár í Köngsens núna eftir okkur. Ég er mjög sáttur að fara aftur þangað enda alls ekki kominn með nóg af Köben eftir 4 mánaðar dvöl.

Bjarki hefur staðið sig eins og hetja í vakningarhringingum núna á morgnanna síðastliðna viku og meira til. Ég hef geta treyst því að hann hringi í mig rúmlega 9 og býður mér góðan dag. Algjörlega ómetanlegt að fá svona símtöl á morgnanna. Nú hýsing á þessari síðu fer að renna út og ætla ég ekki að endurnýja hana. Nema kannski þegar maður verður kominn til Köben eftir ár. Þannig að færslur sem detta inn núna verða með þeim síðustu í bili.

Dagur manns án atvinnu

June 23rd, 2009

Það er auðvelt að halda því fram að maður án atvinnu er letingi og auli. Nú hef ég verið án atvinnu í sumar og fengið að upplifa þetta líf þar sem manni er ekki skylt að mæta í vinnu og vinna við leiðinleg verk. Heldur stjórna ég mér sjálfur og fæ að plana dag minn eftir mínum þörfum. Ég tel það vera lykilatriði að detta ekki í hauginn sem vakir fram eftir nóttu og sefur svo lungað úr deginum. Ég vakna alltaf um 9 og fæ mér minn morgunmat og drekk te-ið mitt. Þá er gott að plana daginn og ákveða hvað skal gera. Það eru mörg verkefni sem bíða mín þetta sumar og reyni ég að vera duglegur að skapa mér verkefni einnig. Til að mynda er nóg að stússast upp í bústað, til dæmis þarf að gróðursetja þar heilan helling og svo þarf að sjálfsögðu að bera á bústaðinn. Það er ekki nóg að gróðursetja bara plönturnar og láta náttúruna sjá um rest heldur þarf að hugsa vel um plöntuna og vökva ásamt næra hana vel þessa fyrstu mánuði á nýjum stað.

Við gróðursettum 50 plöntur um helgina og ætlum að reyna að hafa 200 plöntur sem viðmið hvert sumar. Það ætti að skila sér í góðum skógi þar sem Hallalundur mundi njóta sín vel. Í gær sáði ég birkifræjum í þartilgerðan bakka sem ég keypti í Garðheimum. Vonandi ef allt gengur vel að þá verða komnir birkisprotar eftir nokkrar vikur. Ég lagði Blágrenisfræ í bleyti í gær og hyggst sá þeim í dag. Planið í dag er að smíða kassa sem verður með opnanlegu loki og plasti yfir, þetta væri tilvalið til þess að geyma viðkvæmar plöntur í og gefa þeim kjöraðstæður til þess að vaxa og dafna. Ég ætla mér að fara á sorpu og ná í spýtur eða allavegna gera tilraun til þess. Þar er oft hægt að fá hluti sem kosta annars heilmikinn pening annarsstaðar. Til dæmis eldiviður sem fólk á til að kaupa í súpermörkuðum, þeir eru mjög auðsækjanlegir á Sorpu. Ég hef náð í ófáa drumba þangað og hver og einn skilað sínum tilgangi.

Ég er mjög sáttur með að þetta sumar hef ég náð að mæta á glímuæfingar. En það er eitthvað sem ég hef látið mæta afgangi fyrri sumur þar sem tíminn minn hefur verið svo naumur eftir vinnu að hann hefur farið allur í golf. Ég hef tekið upp pensilinn og málað eina mynd og er að klára mynd nr. 2. Svo ætla ég mér að skrá mig í meistaramótið í GKG og taka þátt í því. Það hefur til dæmis ekki verið möguleiki þegar maður er að vinna þar sem spilað er yfirleitt á virkum dögum. Þannig að það er ýmislegt sem maður kemur í verk sem áður mætti afgangi. Hingað til hefur mér aldrei leiðst og líkar mér mjög vel við að vera minn eiginn herra. Ég verð svo að fara að elda einhvern alvöru mat, fjandinn hvað ég sakna þess að tilraunast í eldhúsinu.

Fly away

June 18th, 2009

Home svít hóm

June 8th, 2009
Það var spilað frekar mikið golf, skorkortin frá 3 vikum

Það var spilað frekar mikið golf, skorkortin frá 3 vikum


Sofandi ferðmaður í plastboxi á flugvellinum í Orlando.

Sofandi ferðmaður í plastboxi á flugvellinum í Orlando.

Cirque du Soleil

June 3rd, 2009

Fórum á Cirque du Soleil í gær, ótrúlega skemmtileg sýning. Aldrei dauður punktur í henni.
Þetta var uppáhaldsatriðið mitt

Hack your body

June 2nd, 2009

Nokkrar leiðir hér til þess að hack your body!

Einfalt líf

May 25th, 2009

Hér er lífið einfalt, eina sem gerist er golf, tan og svo mallið. Less is more eins og einhver sagði.

Anna átti erfitt með að hemja listaþörf sína í Adidas búðinni

Anna átti erfitt með að hemja listaþörf sína í Adidas búðinni